Jæja þá er komið að því að skráning í Miðnæturkeppnina - (Bolaalda Mid-Night Offroad Run 2009). Keppt verður sem fyrr í 6 tíma þolaksturskeppni á lengsta degi ársins. Keppnin sem haldin var í fyrsta sinn á síðasta ári fékk frábærar viðtökur en hátt í 300 ökumenn tóku þátt í keppninni og þeir sem ekki tóku þátt eru væntanlega enn að svekkja sig á því. Keppnin hefst stundvíslega kl. 18.01 og lýkur ekki fyrr en 6 tímum síðar kl. 00.01 eftir miðnætti 21. júní, á lengstu nótt ársins.
Skráning í keppnina hefst á miðnætti (00.00) fimmtudagskvöldið 7. maí hér á vefnum. Ath. að fyrstir koma – fyrstir fá því raðað verður á startlínu eftir skráningartíma ökumanna/liða! Það er því vissara að stilla vekjaraklukkuna og stilla sér upp við tölvuna kl. 23.59 fimmtudagskvöldið 7. maí
Keppnisgjald er 5000 kr. á mann og menn verða að vera skráðir félagar í akstursíþróttafélagi þ.e. VÍK eða öðru félagi og hafa greitt félagsgjald fyrir 2009.
Brautin í fyrra bauð upp á frábæra keppni. Markmiðið með brautarlagningunni nú er að bjóða bæði krefjandi og skemmtilega slóða sem þó henta öllum. Keppnin er hins vegar löng og margt sem getur komið upp á 6 klukkustundum. Á síðasta ári var frábært veður sem gerði keppnina einstaklega eftirminnilega. Við höfum þegar pantað gott veður þetta kvöld hjá Veðurstofunni.
Keppt verður í flokkum karla og kvenna auk þess sem blönduð lið geta líka tekið þátt í eins, tveggja og þriggja manna liðum. Um daginn verður haldin keppni fyrir yngstu ökumennina í 85/150 flokki og 125/250 flokki. Öllum umboðum og þjónustuaðilum stendur til boða að vera með á sýningu á vörum og hjólum og tengdum vörum, auk þess sem um kvöldið verður boðið upp dúndrandi tónlist og fleiri skemmtiatriði. Í lok keppninnar verður keppendum og viðstöddum boðið upp á hressingu a la chef Katoom. Verðlaunaafhending verður kl. 1.00 um nóttina.
Ekki er gert ráð fyrir fjórhjólum þetta árið í þessari keppni en flestir muna eftir keppninni í fyrra sem var frábær í alla staði fyrir okkur fjórhjólamenn. Ég ætla að hafa samband við Hrafnkel Formann VÍK og spjalla við hann um þetta mál ...... Hvernig væri áhuginn fyrir þessari keppni meðal ykkar ??? Væri ekki geðveikt að mæta sem flestir á ráslínu bara til að hafa gaman af og sýna samtöðu .... sýna að það er grundvöllur fyrir fjórhjólakeppnum á þessu litla landi ?? endilega commenta þeir sem myndu mæta alveg 110 %

